Vegaþjónusta FÍB um verslunarmannahelgina

http://www.fib.is/myndir/Helgarflotinn2.jpg

Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB veitir eins og undanfarna rúma hálfa öld félagsmönnum sínum og öðrum vegfarendum margþætta aðstoð um verslunarmannahelgina, mestu ferðamannahelgi ársins. Aðstoðarbílar FÍB verða á ferðinni um allt landið þessa helgi og þjónustunet félagsins sem aldrei hefur verið jafn þétt verður í viðbragðsstöðu.

Á þjóðvegum landsins verður á annan tug þjónustufarartækja félagsins á ferðinni. Auk aðstoðarbíla sem félagið rekur fyrir félagsmenn sína hefur Hekla hf. góðfúslega lánað FÍB-Aðstoð nokkra nýja Volkswagen Golf bíla sem verða eins og þjónustubílar FÍB, sérmerktir og auðþekktir. Sólarhringsvakt verður í höfuðstöðvum félagsins auk þess sem starfsmenn og umboðsmenn félagsins verða í stöðugu sambandi við fjölmiðla.

Vegfarendur munu því jafnharðan fá upplýsingar um hvar þjónustubíla og björgunaraðila á vegum FÍB verður að finna hverju sinni og á hvaða leið þeir eru. Sími FÍB aðstoðar er 5 112 112 og sími stjórnstöðvar FÍB er 414 9999. 
Starfsmenn þjónustubíla FÍB veita aðstoð á vegum úti ef t.d. dekk springur eða bíll verður rafmagnslaus. Ef meiri viðgerða gerist þörf, kalla þeir eftir þeirri aðstoð sem nauðsynleg er, t.d. eftir þjónustu dráttarbíla eða verkstæða, útvegun varahluta, aðstoð lögreglu eða sjúkraliðs, - í stuttu máli veitir félagið alla þá aðstoð sem mögulegt er að veita í hverju tilfelli til að fólk komist heilt heim.

The image “http://www.fib.is/myndir/Helgarflotinn.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.Innan þjónustunets FÍB um allt Ísland eru alls um 30 umboðsmenn félagsins og tugir bifreiðaverkstæða og þjónustuaðilaa sem veita félagsmönnum FÍB forgangsþjónustu. Fyrir atbeina FÍB verður sérstök vakt hjá mörgum þessara aðila. Meðal þeirra eru mörg bifreiðaumboðanna og stærstu varahlutaverslanir landsins sem verða með sérstaka bakvakt. Stjórnstöð FÍB mun annast útvegun varahluta hjá þessum aðilum í neyðartilvikum og koma þeim í réttar hendur eftir því sem við verður komið.

FÍB óskar öllum landsmönnum góðrar og gleðilegrar ferðar um verslunar- 
mannahelgina og á ferðalögum almennt. FÍB hvetur ökumenn til að undirbúa ferðalög sín vel og aka af gætni og ábyrgð. http://www.fib.is/myndir/Helgarflotinn3.jpg

Hekla hf. hefur góðfúslega lánað FÍB nokkra nýja VW Golf bíla til að stykja vegaþjónustuna um þess mestu ferðahelgi ársins. FÍB þakkar liðsinnið og þá vinsemd sem fyrirtækið með þessu sýnir í garð félagsins og íslenskra bifreiðaeigenda.