Allt að 89% verðmunur á umfelgun í könnun FÍB

Dagana 24 og 25. október kannaði Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, verð á umfelgun hjá 29 dekkjaverkstæðum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.

Spurt var: Hvað kostar umfelgun og jafnvægisstilling annars vegar á fjórum 16 tommu álfelgum, 205/55 R16, og hins vegar á fjórum 18 tommu álfelgum, 235/55 R18.

Óskað var eftir listaverði án allra afslátta eða sérkjara eins og FÍB-afsláttar, eldri borgara afsláttar o.s.frv. Það skal tekið fram að sum fyrirtækin í könnuninni gefa enga afslætti á þau verð sem gefin eru upp.

Lægsta verðið á umfelgun og jafnvægisstillingu á 16 tommu álfelgum reyndist hjá Bílaverkstæðinu No.22 við Hyrjarhöfða í Reykjavík eða 8.500 krónur. Lægsta verð á umfelgun og jafnvægisstillingu á 18 tommu álfelgum reyndist vera hjá Bifreiðaverkstæði Borgarfjarðar í Reykholti eða 10.000 krónur.

Hæsta verðið var hjá Nesdekk sem rekur sjö þjónustuverkstæði í Reykjavík, Garðabæ, Reykjanesbæ og á Akureyri. Umfelgun og jafnvægistilling fyrir 16 tommu álfelgur er 13.990 krónur og á 18 tommu álfelgum 18.990 krónur.

Munur á hæsta og lægsta verði á 16 tommu álfelgum er 64,6% og 18 tommu álfelgum 89,9%. (Öll verð má sjá nánar í töflu).

Allflestum hjólbarðaverkstæðum á landinu var send fyrirspun í tölvupósti. Spurt var: Hvað kostar umfelgun og jafnvægisstilling annars vegar á fjórum 16 tommu álfelgum, 205/55 R16, og hins vegar á fjórum 18 tommu álfelgum, 235/55 R18. Eingöngu var kannað verð á þessari tegund bifreiðaþjónustu. Ekkert var spurt um gæði þjónustunnar og mismunandi þjónustustig. Einvörðungu var miðað við álfelgur enda má gera ráð fyrir því eftir lauslega athugun að álfelgur séu undir um 70% fólksbíla.

1. nóvember gengur hinn formlegi vetradekkjatími í garð, þegar löglegt verður að aka á nelgdum vetrarhjólbörðum. FÍB vekur athygli á að samkvæmt umferðarlögum ber ökumaður ábyrgð á því að aka um á dekkjum sem eru í samræmi við aðstæður hverju sinni, óháð árstíðum.

Umfelgun