Verðlækkun á eldsneyti hjá Orkunni og Atlantsolíu

Orkan hefur lækkað verð á bensíni um 3,4 krónur niður í 228,9 krónur á lítra og dísilolíuna um 1 krónu niður í 231,3 krónu á lítra.  Atlantsolía lækkaði í kjölfarið bensínið í 228,9 krónur á lítra og dísilolíu í 231,40 krónur á lítra.  Ástæðan er lækkun heimsmarkaðsverðs.