Verðstríð á eldsneyti á Akureyri

Ákvörðun Atlantsolíu að lækka eldsneytisverð við sölustöðina við Baldursnes á Akureyri í gær til samræmis við verðstefnu sína í Kaplakrika í Hafnarfirði og Sprengisand í Reykjavík hefur heldur betur haft áhrif. Í dag lækkuðu tvær aðrar eldsneytisstöðvar á Akureyri sitt verð, Orkan á Mýrarvegi og ÓB við Hlíðarbraut til samræmis við Atlantsolíu á Baldursnesi.

Eftir að verðstríðið skall á er bensínlítrinn lægstur hjá Orkunni, 185,4 kr. En 185,5 kr. hjá Atlantsolíu og ÓB.

Almennt bensínverð á öðrum sölustöðum á Akureyri er um 215 krónur. Lítra­verð hjá N1 á Ak­ur­eyri 214,9 krón­ur.

Verð á dísil hef­ur einnig lækkað og er 181,4 krón­ur hjá Ork­unni á Mýr­ar­vegi og 181,5 krón­ur hjá Atlantsol­ía við Bald­urs­nes og ÓB við Hlíðarbraut.