Veturinn er rafmagnaður hjá Heklu

Bílaumboðið Hekla efnir til laugardaginn 14. janúar til rafmagnaðrar vetrarsýningar að Laugavegi 174 á milli klukkan 12 og 16. Árið 2023 verður viðburðarríkt fyrir Heklu sem fagnar meðal annars 90 ára afmæli. Á sýningunni verður lögð áhersla á rafmagnsbíla og allt sem viðkemur hleðslulausnum.

Fjölbreytt úrval rafbíla verður til sýnis, má þar nefna Skoda Enyaq sem fengið hefur frábærar viðtökur hér á landi og hefur fest sig í sessi sem einn mest seldi rafmagnsbíll landsins og fæst í ýmsum útfærslum.

ID fjölskylda Volkswagen hefur vakið mikla athygli og fer ört stækkandi og inniheldur nú fimm tegundir, nýlega bættust við ID.5 og ID.Buzz, sem leysir gamla rúgbrauðið af hólmi, sem margir eiga svo góðar minningar um. Einn af ID fjölskyldunni, atvinnubíllinn ID.Buzz Cargo, var nýlega valinn alþjóðlegur sendibíll ársins 2023.

Hinn glæsilegi Audi e-tron 55 verður á sýningunni, en nokkrir bílar eru til á lager sem hægt er að fá afhenta á næstu dögum. Audi Q4 sem fengið hefur góðar viðtöku á Íslandi verður á staðnum auk flaggskipsins e-tron GT.

Að auki verður hinn vinsæli Mitsubishi Eclipse Cross á svæðinu sem var mest seldi tengiltvinn bíll á Íslandi árið 2022.

Starfsfólk Heklu kynnir og veitir ráðgjöf um allt það nýjasta í hleðslustöðvum sem henta rafbílum, auk fulltrúa frá Ísorku og ON.