Viðskiptavinir eldsneytissölu Costco þeir ánægðustu á Íslandi

Costco eldsneyti var með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru hjá Íslensku Ánægjuvoginni þetta árið. Viðskiptavinir eldsneytissölu Costco eru þar af leiðandi þeir ánægðustu á Íslandi.

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2020 voru kynntar í dag og er þetta tuttugasta og annað árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og sáu Zenter rannsóknir um framkvæmd rannsóknarinnar. 

Á eldsneytismarkaði fékk eldsneytissala Costco 85,8 stig af 100 mögulegum, Nova fékk 78,5 á farsímamarkaði, Krónan var hæst allra á matvörumarkaði með 74,2 stig, BYKO fékk 68,2 á byggingavörumarkaði, Sjóvá fékk 72,6 stig á tryggingamarkaði og var IKEA hæst allra fyrirtækja á smásölumarkaði með 78,0 stig.

Costco eldsneyti var síðan með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni þetta árið og eru viðskiptavinir eldsneytissölu Costco þar af leiðandi þeir ánægðustu á Íslandi.