Volkswagen Amarok sameinar kosti lúxusjeppa og pallbíls

Volkswagen Amarok er glæsilegur pallbíll með stíl sem hefur upp á að bjóða mikla notkunarmöguleika fyrir fólk með fjölbreyttan lífsstíl. Hann kemur með einstaklega aflmiklum 3.0 lítra V6 dísilvélum með allt að 550 Nm togi og átta gíra sjálfskiptingu.

Hekla mun frumsýna Amarok á morgun, laugardaginn 6.maí, í húsakynnum bílaumboðsins á Laugavegi og hefst hún klukkan 12.

Þessi glæsilegi pallbíll er með mikið innanrými og stóran pall og hann er þægilegur í jafnt lengri sem styttri ferðum.

Beygjuradíusinn er innan við 13 m. sem gerir hann einstaklega lipran í borgarumferð auk þess sem hann tæklar erfiðustu aðstæður með fullkomnu fjórhjóladrifi og er sérlega stöðugur í akstri. Þá er dráttargetan 3500 kg.

Volkswagen Amarok sameinar kosti lúxusjeppa og pallbíls og búnaðurinn er einstaklega ríkulegur. Meðal staðalbúnaðar má nefna tvískipta tölvustýrða loftkælingu, fjarlægðarskynjara að framan og aftan, Bluetooth, 18” álfelgur, sjálfvirkan vélarhitara (Webasto) og regn- og birtuskynjara.

Í Highline Plus útfærslunni eru að auki meðal annars LED aðalljós og bakkmyndavél.