Volvo vin­sæl­asti lúx­us­bíll­inn hér á landi á nýliðnu ári

Volvo hef­ur verið í mik­illi sókn und­an­far­in ár á lúx­us­bíla­markaði á heimsvísu og hefur slegið sölumet 6 ár í röð. Árið 2019 náði Volvo að selja yfir 700.000 bíla í fyrsta sinn í 93 ára sögu þeirra eða 705.452 bíla sem er 9,8% aukning frá árinu áður og juku þannig markaðshlutdeild sína á öllum mörkuðum.

Árið 2019 var Volvo með 35,2% hlut­deild á einka­bíla­markaði lúxusbíla og á heildarbílamarkaði lúx­us­bíla ber Volvo höfuð og herðar yfir aðra lúx­us­bíla með 29,2% hlut­deild á ár­inu sem var að líða sem er mesta hlutdeild á einu markaðssvæði á heimsvísu. Vin­sæl­ustu Volvo bíl­arnir eru jepp­arn­ir XC90, XC60 og XC40.

Land Rover kom í öðru sæti hvað hlutdeild varðar með 17,2%. Marcedes Benz, Audi og BMV komu síðan í næstu sætum.