Vöxtur Hyundai heldur áfram á Evrópumarkaði

Asíski bílaframleiðandinn Hyundai heldur áfram að styrkja stöðu sína á Evrópumarkaði. Vöxtur fyrirtækisins á fyrri helmingi ársins í ár var í samræmi við áætlanir þegar alls voru um 271 þúsund bílar nýskráðir samkvæmt upplýsingum frá Samtökum evrópskra bifreiðaframleiðenda (ACEA).

Aukningin er  3,6 prósenta samanborið við sama tíma í fyrra. Meðal bílgerða sem Hyundai þakkar árangurinn eru hinn nýi fimm dyra i30 Wagon auk þess sem miklar vonir eru bundnar við i30 N og i30 Fastback sem fara á markað síðar í þessum mánuði á helstu lykilmörkuðum Evrópu.

Ef litið er til söluþróunar á einstökum mörkuðum Evrópu á fyrri helmingi ársins óx sala á Hyundai um 18% í Frakklandi, í Póllandi um 17% og á Spáni um 10% svo dæmi séu tekin, enda þótt Bretland sé áfram stærsti og mikilvægasti einstaki Evrópumarkaður.

Á næstu fimm árum mun Hyundai kynna 30 nýja bílgerðir í Evrópu til að styðja við aukna eftirspurn neytenda eftir bílum fyrirtækisins og það markmið Hyundai að verða helsti asíski bílaframleiðandinn í álfunni þegar á árinu 2021.