Yfir 40 þúsund hraðabrot skráð með sjálfvirku hraðaeftirliti

Hæsti hraði sem mældist með sjálfvirku hraðaeftirliti árið 2021 var 166 km/klst. Yfir fjörutíu þúsund hraðabrot voru skráð það ár og þar af um 19 þúsund á höfuðborgarsvæðinu. Átta nýjar meðalhraðamyndavélar voru teknar í notkun við árið 2021. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársskýrslu 2021 um framkvæmd umferðaröryggisáætlunar.

Ársskýrslan greinir frá sértækum aðgerðum umferðaröryggisáætlunar en meðal verkefna er framkvæmd sjálfvirks hraðaeftirlits. Í skýrslunni eru teknar saman helstu tölur varðandi slíkt eftirlit fyrir árið 2021.

Stafrænar hraðamyndavélar sem eru í notkun á landinu eru 22 talsins og eru notaðar á 28 mælistöðum fyrir sjálfvirkt hraðaeftirlit. Mælistaðirnir eru fyrst og fremst á Hringvegi, í jarðgöngum, á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu.

Vegagerðin sér um almennan rekstur myndavélanna og viðhald eldri mælistaða. Hún sér einnig um að láta kvarða myndavélarnar og sinnir almennu viðhaldi þeirra. Fyrstu stafrænu hraðamyndavélarnar voru teknar í notkun árið 2007 og hafa þær elstu því verið virkar í 15 ár.

Árið 2021 voru að auki teknar í gagnið átta myndavélar sem notaðar eru fyrir meðalhraðaeftirlit. Fjórar á Grindavíkurvegi og fjórar í Norðfjarðargöngum.

Hraðakstursbrot eru skráð í málaskrá lögreglu en árið 2021 voru skráð 40.420 brot sem eru töluvert fleiri en árið á undan þegar umferð var óvenju lítil vegna heimsfaraldurs Covid-19. Fjöldinn er hins vegar í takti við þróunina sem var árin fram að því. Árið 2021 skráðu stafrænar hraðamyndavélar að meðaltali um 111 brot á dag.

Fram kemur í skýrslunni að flest brotin voru skráð á vélarnar á höfuðborgarsvæðinu eða 19.001 brot og næstflest voru tekin á vélar á Suðurlandsvegi, yfir 5.000 brot. Flest brot voru skráð á seinni hluta árs eða frá ágúst til nóvember en fæst í janúar. Sá ökumaður sem ók hraðast samkvæmt skráningu hraðamyndavéla var á 166 km/klst á Suðurlandsvegi.

Myndavélar á höfuðborgarsvæðinu mældu flest hraðakstursbrot á svæðum þar sem hámarkshraði var 60 km/klst, eða 10.694 brot. Þar af voru flest brot á Sæbraut og næstflest á Hringbraut og Breiðholtsbraut. Brot þar sem hámarkshraði er 80 km/klst voru alls 3.981. Þau áttu sér flest stað á Vesturlandsvegi í póstnúmeri 110. Þar sem hámarkshraði er 30 km/klst áttu flest brot sér stað í Skeiðarvogi.

Á landsvísu, þar sem hámarkshraðinn var 70 km/klst óku flestir brotlegir á milli 81-90 km/klst eða 52% allra. Flest þeirra brota þar sem mældur hraði var yfir 111 km/klst. áttu sér stað í Fáskrúðsfjarðargöngum.

Þar sem hámarkshraðinn var 90 km/klst óku flestir brotlegir á milli 101-110 km/klst eða 53%. Þegar litið er til hópsins sem keyrði yfir 121 km/klst voru lang flest brot skráð á vélar á Suðurlandsvegi eða 76% slíkra brota.

Nánari upplýsingar og gröf má finna í ársskýrslunni.