160 milljónir km á rafmagninu einu

Eigendur Chevrolet Volt í Bandaríkjunum hafa ekið yfir 100 milljónir mílna á rafmagni, 160 milljónir km, samanlagt frá því bíllinn kom á markað fyrir tveimur árum. Að meðaltali gengur Volt fyrir rafmagni 65% aksturstímans og nýtir bensínvélina til að framleiða rafmagn inn á rafgeyminn einungis á lengri leiðum. Á þessu tímabili hafa eigendur Volt sparað um 20 milljónir lítra af bensíni.

Reiknað yfir í krónur jafngildir þessi sparnaður tæplega 5 milljörðum króna. Verið er að kynna Chevrolet Volt um þessar mundir hér á landi og hefur Bílabúð Benna, umboðsaðili Chevrolet á Íslandi, fengið fyrstu bílana.

Með því að endurhlaða rafgeyminn reglulega komast eigendur Volt alls um 1.449 km leið og geta ekið í um einn og hálfan mánuð á milli þess sem bensíntankurinn er fylltur. Margir hafa hins vegar fljótlega farið yfir þetta meðaltal, þ.á m. Andrew Byrne frá Los Angeles.

„Ég kaupi einungis bensín þegar framundan eru lengri ferðir því í öllum daglegum akstri gengur bíllinn fyrir rafmagni,“ segir Byrne. „Síðast ók ég 3.057 km á einni tankfyllingu.“

Eigendur Volt bera augljóslega arð af fjárfestingu sinni með því að fækka ferðum á bensínstöðvar. Samkvæmt útreikningum Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna spara eigendur Volt um 1.370 dollara á ári í eldsneytiskostnað, nálægt 180.000 ÍSK, í samanburði við eigendur hefðbundinna bensínbíla í Bandaríkjunum. 

Fyrir dæmigerðan ökumann jafngildir sparnaðurinn við notkun Volt innkaupum á matvörum í níu vikur þegar keypt er inn fyrir 151 dollara í hvert sinn, 228 skiptum í bílþvott sem kostar 6 dollara hvert skipti eða 137 bíómiðum sem hver kostar 10 dollara.