Aðgengi fatlaðra að hlöðum ON eflt

Orka náttúrunnar vinnur að því að tryggja gott aðgengi hreyfihamlaðra að hlöðunum ON, sem nú eru 31 talsins, hringinn í kringum landið. Í gær var tekin í notkun ný hraðhleðsla í hlöðunni við Bæjarháls 1, þar sem ON er til húsa. Þar reis fyrsta hlaða ON vorið 2014 og var hún ein þeirra þar sem aðgengi var ófullnægjandi.

Guðjón Sigurðsson, starfsmaður Veitna systurfyrirtækis ON og ötull baráttumaður í aðgengismálum, var fyrstur til að nota nýju hraðhleðsluna. Viðstatt var líka starfsfólk OR og dótturfyrirtækjanna á Bæjarhálsi.

Við þetta tækifæri þakkaði Bjarni Már Júlíusson, framkvæmdastjóri ON, Gauja fyrir að halda fólki við efnið í aðgengismálum. „Hlöðurnar eru tiltölulega nýtt fyrirbæri og margt að læra. Ábendingar fólks eru okkur því mikilvægar og við tökum mark á þeim,“ sagði Bjarni Már.

ON hefur reist hverja hlöðuna á fætur annarri síðasta árið. Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfbjargar, gerði ON þann heiður að taka hlöðuna á Hvolsvelli í notkun í september síðastliðnum. Aukinn þungi færðist í aðgengismál við þann viðburð. Gætt hefur verið að tækifærum fatlaðra við allar þær hlöður sem opnaðar hafa verið síðan.

ON telst til að aðgengi sé í lagi við meirihluta hlaðanna en vorið og sumarið verða nýtt til að bæta úr þar sem þarf.