Annar áfangi af breikkun milli Hveragerðis og Selfoss

Vegagerðin og Íslenskir Aðalaverktakar skrifuðu í dag undir verksamning vegna annars áfanga breikkunar Suðurlandsvegar á milli Hveragerðis og Selfoss. Verkið er unnið í beinu framhaldi af fyrsta áfanga sem lauk í fyrra og er um að ræða ríflega 7 km kafla. 

Verkið heitir formlega Biskupstungnabraut - Hveragerði, 2. áfangi; Biskupstungnabraut – Gljúfurholtsá. Verksamningur hljóðar upp á 5.069 m.kr. í samræmi við tilboð ÍAV hf. sem áttu lægsta tilboðið. Heildarkostnaður verður meiri enda er ekki inn í þessari tölu kostnaður við undirbúning, hönnun og eftirlit.

ÍAV var einnig með fyrsta áfanga verksins einnig og þekkir því vel til aðstæðna á þessu svæði. Nú þegar hefur ÍAV hafið undirbúning að uppsetningu vinnubúða og reikna þeir með að hefa stöfr af krafti strax eftir páska. 

Nánar um verkið. Um er að ræða nýbyggingu Hringvegar að hluta og breikkun og endurgerð að hluta, alls um 7,1 km. Gerð verða ný vegamót við Kirkjuferjuveg og Hvammsveg eystri ásamt nýju hringtorgi við Biskupstungnabraut. Lagður verður nýr tæplega 5 km Ölfusvegur með hjólareinum ásamt breytingu á Þórustaðavegi og Biskupstungnabraut.

Byggð verða þrjár nýjar brýr á Gljúfurholtsá og Bakkárholtsá, undirgöngum fyrir bíla við Þórustaði og við Kotströnd þar sem Ölfusvegur fer undir nýjan Hringveg.  Þá verða byggð tvenn sérstök undirgöng fyrir reiðleiðir og gönguleiðir. Einnig eru breytingar á lögnum veitufyrirtækja innifalin í verkinu.

Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi með því að aðskilja akstursstefnur og fækka tengingum við Hringveg ásamt því að auka umferðarrýmd vegakerfisins milli Hveragerðis og Selfoss.

Með framkvæmdinni verður jafnframt til nýr samfelldur hliðarvegur, Ölfusvegur, með sérstökum hjólareinum frá Hveragerði að Biskupstungnabraut.

Að loknum framkvæmdum verða einungis tvenn vegamót á kaflanum frá Biskupstungnabraut að Hveragerði. 

Til að ljúka breikkun Hringvegar og aðskilnaði akstursstefna frá Biskupstungnabraut að Kömbum er svo gert ráð fyrir að Hringvegur verður færður til suðurs við Hveragerði í nýja veglínu samkvæmt aðalskipulagi Hveragerðisbæjar. Sú framkvæmd er í undirbúningi og gert er ráð fyrir henni á samgönguáætlun árið 2023. Verkinu skal að fullu lokið 29. september 2023.

Hér má sjá myndband af áfanga 2