Askja innkallar 227 Mercedes-Benz C-Class og GLC bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Öskju ehf  um að innkalla þurfi 227 Mercedes-Benz C-Class og GLC bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að kælimiðilslögn sé ekki rétt staðsett sem gæti valdið hættu lendi bifreiðin í tjóni.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.