Askja innkallar Mercedes-Benz

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi 17 Mercedes-Benz bifreiðar af C-Class, CLK, E-Class og CLS gerð. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að líming á topplúgu sé ófullnægjandi.


Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.