Askja innkallar Mercedes Benz Sprinter bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf. um að innkalla þurfi 25 Merzedes Benz Sprinter bifreiðar af ótilgreindum árgerðum. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að boltar sem halda húddlæsingu séu ekki nægilega vel hertir. Viðgerð felst í yfirferð á herslu.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.