Bílaleigufyrirtækið Hertz sækir um greiðslustöðvun í Bandaríkjunum

Kórónuveirufaraldurinn hefur leikið mörg fyrirtækin grátt um allan heim. Sum berjast í bökkum og önnur stefna í þrot eða hafa sótt um greiðslustöðvun. Bílaleigufyrirtækið Hertz er eitt þeirra sem óskað hafa eftir greiðslustöðvun í Bandaríkjunum. Á meðan hún varir ætla stjórnendur fyrirtækisins að vinna að því af öllum mætti að koma því á flot aftur.

Samkvæmt fréttum verður starfsemin með óbreyttum hætti í Evrópu og í Eyjaálfu. Samt sem áður er reksturinn þar einnig þungur og þó mun betri en í Bandaríkjunum.

Hertz sem og aðrar bílaleigur hafa orðið fyrir gífurlegu höggi í kórónuveirufaraldrinum. Á meðan lokanir eru enn í fullu gildi víða og engir ferðamenn á ferðinni hefur þetta ástand komið mjög hart niður á bílaleigum. Yfir 40 þúsund manns vinna hjá Hertz samsteypunni og hefur um helmingur þeirra misst vinnuna. Fjórstjórinn er meðal þeirra en hann lét af störfum fyrir tveimur vikum síðan.

Félagið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir slælega stjórnunarhætti en nokkru fyrir greiðslustöðvunina greiddi fyrirtækið æðstu stjórnendum þess yfir tvo milljarða íslenskra króna í bónusa. Ljóst er að mikil vinna blasir við að koma fyrirtækinu á réttan kjöl í Bandaríkjunum.