BL ehf innkalla 86 Subaru VX bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 86 Subaru VX bifreiðar af árgerð 2018-2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að boltar á festingu fyrir jafnvægisstöng geti losnað.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.