BL hefur selt þrjú þúsund rafbíla

Bílaumboðið BL  afhenti í síðustu viku þrjú þúsundasta rafbílinn frá því að fyrirtækið hóf sölu rafbíla árið 2013. Bíllinn sem afhentur var er af gerðinni BMW iX Atelier xDrive40, sem er nýjasti fjórhjóladrifni jepplingurinn frá BMW.

BL nýskráði fyrsta rafbílinn árið 2013 liðu ríflega fimm ár þar til fyrirtækið hafði selt eitt þúsund slíka bíla, sem var í árslok 2018. Frá þeim tíma leið aðeins 21 mánuður þar til fyrirtækið hafði nýskráð eitt þúsund rafbíla til viðbótar, en það var í lok ágúst árið 2020.

Síðan þá liðu átján mánuðir þar til BL nýskráði í síðustu viku þrjú þúsundasta rafbílinn og afhenti Pétri Steinþórssyni flugmanni bíllyklana með viðhöfn í sal BMW við Sævarhöfða.