Breikkun Vesturlandsvegar í undirbúningi

Í vinnslu er nýtt deili­skipu­lag fyr­ir Hring­veg­inn (1) um Vest­ur­lands­veg frá sveit­ar­fé­lags­mörk­um við Mos­fells­bæ að Hval­fjarðargöng­um. Um er að ræða u.þ.b. 14 kíló­metra kafla. Ekki liggur enn fyrir hvenær ráðist verður í þessa framkvæmd en um er að ræða 14 km vegakafla.

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar og Vegagerðin héldu kynningarfund til að kynna fyrir landeigendum og öðrum hagsmunaðilum þau drög sem liggja fyrir við gerð deiliskipulags fyrir Vesturlandsveg á Kjalarnesi á fjölmennum fundi í lok síðustu viku. 

Í vinnslu er nýtt deiliskipulag fyrir Hringveginn (1) um Vesturlandsveg frá sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ að Hvalfjarðargöngum. Um er að ræða u.þ.b. 14 km kafla. Tildrög verkefnisins eru að Vegagerðin hyggur á næstu árum á framkvæmdir á um 9 km kafla fyrir 2+1 veg frá Hvalfjarðargöngum að Kollafirði í núverandi vegastæði.

Með skipulagsvinnunni er einnig vonast til þess að það náist heildstætt yfirlit yfir alla aðra samgönguþætti sem þarf að útfæra nánar í skipulagi, þ.e.a.s. hliðarvegi, göngustíga, reiðleiðir og hjólaleiðir.

Meðal markmiða skipulagsins og framkvæmdanna er að Vesturlandsvegur verði endurbættur til að auka öryggi umferðar og greiða fyrir umferð og er því verið að skoða fækkun tenginga við þjóðveginn með gerð hliðarvega sem tengjast við þjóðveginn með hringtorgum á völdum stöðum.