Breytingar á verðskrá hraðhleðslunets Orku náttúrunnar

ON hefur tilkynnt breytingar á verðskrá hraðhleðslunets fyrirtækisins. Hætt verður að innheimta mínútugjald á 50kW og 150kW hraðhleðslustöðvum ON og aðeins verður greitt fyrir kWst. Síðar á árinu 2021 verður svo sett tafagjald á bíla sem eru enn tengdir við hraðhleðslustöð eftir að hleðslu er lokið. Áfram verður innheimt lágt tímagjald á 22kW hleðslum, eða 0,5 kr á mín.

Orka náttúrunnar (ON) hóf að byggja upp hraðhleðslunet fyrir rafbíla hringinn í kringum landið árið 2014. Síðan þá hefur hleðsluhegðun rafbílaeigenda og afkastageta hraðhleðslna og rafbíla breyst mikið samhliða fjölgun rafbíla. Verðskrá hleðslunets ON hefur að sama skapi verið óbreytt frá upphafi. Ný verðskrá sem tók gildi 1. janúar tekur mið af breyttri hleðsluhegðun íslenskra rafbílaeigenda og aukinni afkastagetu hleðslustöðva. Til þessa hefur verðskrá ON verið óhagstæðari fyrir eldri bíla sem þurft hafa lengri tíma til að hlaða.

Að sögn Berglindar Ránar Ólafsdóttur, framkvæmdastýru ON, hefur fyrirtækið ekki hækkað verð né breytt verði frá því að það hóf þessa vegferð.

,,Nú eru breyttir tímar, hleðslustöðvar eru orðnar mun öflugri og rafbílar orðnir mun fleiri og hleðsluhraði þeirra mjög misjafn. Af þeim sökum verðum við að breyta verðskrá en við munum enn reyna að gera vel við viðskiptavini okkar. ON mun halda áfram uppbyggingu hleðslunets með nýjustu kynslóð hraðhleðslustöðva þar sem þörfin er mest.“

Fram kemur að 40% afsláttur af hleðsluneti ON sem fyrirtækið hefur boðið viðskiptavinum sem kaupa jafnframt rafmagn til heimilisins verður lækkaður í 20%. Á móti kemur að viðskiptavinum ON sem nýta hleðslunet félagsins verður einnig veittur 10% afsláttur af notkun heimilisrafmagns. Kröfurnar eru þá eingöngu þær að vera rafbílaheimili, þ.e. heimili í viðskiptum við ON ásamt því að vera með rafbíll og ON lykil.

Verðskrá frá 1. janúar 2021

Verð í 50kW og 150kW DC hraðhleðslustöðvar
50kW DC: fullt verð 50kr/kWst. Viðskiptavinir ON greiða: 40kr/kWst. með afslætti.
150kW DC: fullt verð 65kr/kWst. Viðskiptavinir ON greiða: 52kr/kWst. með afslætti.

Verð í 22kW AC hleðslustöðvar
22kW AC 25kr/kWst og 0,5 kr. gjald á mínútu. Viðskiptavinir ON greiða að meðaltali ca. 251kr.* fyrir hleðslu með afslætti.