Dregur úr samdrætti umferðar á höfuðborgarsvæðinu

Umferðin í þriðju viku ársins á höfuðborgarsvæðinu reyndist um 4% minni en í sömu viku á síðasta ári. Þetta er minnsti samdráttur milli vikna það sem af er ári.  Samtals frá áramótum hefur umferðin nú dregist saman um 14%. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.

Mest dróst umferðin saman um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 10,2% en minnst um mælisnið á Reykjanesbraut eða um1,4%.

Breytingar milli áranna 2020 og 2021 í viku 3 eftir mælisniðum:

Hafnarfjarðarvegur við Kópavogslæk       -10,2%
Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi       -1,4% 
Vesturlandsvegur ofan Ártúnsbrekku          -2,2%