Grænbók um samgöngumál gefin út að loknu samráði

Grænbók um samgöngumál, þar sem greind er staða málaflokksins og lagður grundvöllur fyrir endurskoðaða stefnumótun í samgöngum til fimmtán ára, hefur nú verið birt ásamt fylgigögnum á vef ráðuneytisins

Grænbókin var opin til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda frá 6. júlí til 10. ágúst sl. Alls bárust 15 umsagnir. Gerð er nánari grein fyrir umsögnunum og viðbrögðum við þeim í samantekt sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda.

Fram kemur að Grænbók um samgöngumál er hluti af stefnumótunarferli samgönguáætlunar og er unnin á grunni laga um samgönguáætlun, nr. 33/2008. Umfjöllun grænbókarinnar byggir m.a. á stöðumati framkvæmdaraðila, þ.e. stofnana ráðuneytisins og Isavia. Þá er í grænbókinni einnig byggt á nýjum greiningum, svo sem varðandi börn og samgöngur, jafnrétti í samgöngum, vöruflutninga, vinnusóknarsvæði, arðsemi umferðaröryggisaðgerða og aðlögun samgangna að loftslagsbreytingum.

Annar grundvöllur stöðumatsins er samtal við landsmenn og hagsmunaaðila. Átta opnir fundir voru haldnir í öllum  landshlutum í mars og apríl í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga. Helstu niðurstöður samtalsins voru teknar saman í sérstakri skýrslu, sem er eitt af fylgiskjölum grænbókarinnar. Jafnframt voru haldnir fundir með öðrum ráðuneytum og samstarfsaðilum, þar farið var yfir snertifleti samgönguáætlunar við aðrar áætlanir Stjórnarráðsins.

Fram kemur í tilkynningu að um er að ræða fyrstu grænbókina sem tekin hefur verið saman um samgöngumál í samræmi við stefnumótunarferli Stjórnarráðsins og samhæfingu áætlana á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála. Markmið grænbókarinnar er að hvetja til umræðu um stöðumat, viðfangsefni og framtíðarsýn í samgöngumálum sem og um áherslur og valkosti. 

Næsta skref stefnumótunarvinnunnar er mótun stefnu sem inniheldur framtíðarsýn fyrir málaflokkinn og markmið sem marka leiðina ásamt áherslum (hvítbók).