Himnakýr?

Furðuleg vegskilti eru víða til og þetta sem myndin er af er óneitanlega með þeim skrýtnari. Er það virkilega svo að búast megi við nautgripum fallandi af himni ofan niður á bíla ásamt grjóti úr hlíðinni meðfram veginum?

Detroit News birtir myndina. Hún er frá lesanda sem sendi hana inn í árlega ljósmyndakeppni sem blaðið stendur fyrir. Í henni er óskað eftir myndum af furðulegum vegskiltum og þetta er reyndar sigurmyndin í ár. Hún er tekin skammt utan við borgina Taos í New Mexico sem sögð er vera höfuðborg nýaldarfræða í Bandaríkjunum..