Hraðhleðslustöðvar á lóðum Húsasmiðjunnar

Ískraft, dótturfélag Húsasmiðjunnar, og Orkusalan hafa gert með sér samkomulag um uppbyggingu hraðhleðslustöðva á lóðum Húsasmiðjunnar um allt land á næstu tveimur árum.

Fyrsta hraðhleðslan var opnuð á dögunum á Akureyri við nýja verslun Húsasmiðjunnar, Ískrafts og Blómavals við Freyjunes. Hraðhleðsustöðin þar er með 150 kw hleðslugetu og getur hún hlaðið tvo bíla í einu.

Ef tveir bílar hlaða samtímis deilir stöðin afli á millli þeirra að hámarki 75kW á tengi. Einnig voru settar upp sex 22 kw hleðslustöðvar á sama stað. Til að byrja með verður frítt að hlaða fyrir rafbílaeigendur.