Innkallanir á bifreiðum frá BL og Brimborg

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um að innkalla þurfi 87 Subaru XV bifreiðar af árgerð 2017 til 2019. Ástæða innköllunarinnar er að mögulega þarf að skipta um háspennukefli og endurforrita vélstjórnarbox.

Þá hefur Neytendastofu ennfremur borist tilkynning frá Brimborg ehf.  um að innkalla þurfi 21 Volvo XC40 bifreiðar af árgerð 2018 til 2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að aukamiðstöðu bifreiðarinnar fari ekki í gang.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.