Innkallanir á Hyundai Kona og Volvo

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf um að innkalla þurfi 33 Volvo V40 og V40CC bifreiðar af árgerð 2015-2017. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að lofttappi getur myndast við áfyllingu kælivökva. Gerist það, leiðir það til ófullnægjandi kælingar á velarhlutum og jafnvel valdið eldhættu. Viðgerð felst í uppfærlsu á kælihosum milli forðabúrs og vatnskassa.

Þá hefur Neytendastofu ennfremur borist tilkynning frá BL Hyundai ehf um að innkalla þurfi 49 Hyundai KONA EV bifreiðar af árgerð 2018-2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að hugbúnaðarvilla valdi því að bremsupetali verður þungur. Viðgerð felst í hugbúnaðaruppfærslu.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis eða símleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.