Innkallanir hjá Brimborg og BL

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf  um að innkalla þurfi 24 Mazda MX-30 bifreiðar af árgerð 2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að bremsuljós og Motor hill assist kerfið virki ekki sem skildi. Viðgerð felst í hugbúnaðaruppfærslu.

Neytendastofu hefur ennfremur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 4 Nissan eNV-200 bifreiðar af árgerð 2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að loftpúði virki ekki sem skyldi. Viðgerð felst í því að skipt verður um loftpúða. Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis.