KIA EV6 – dregur allt að 510 km á einni hleðslu

Mikil eftirvænting ríkir fyrir komu hins nýja rafbíls Kia EV6 sem var frumsýndur í dag. Þessi spennandi og sportlegi jepplingur dregur allt að 510 km á einni hleðslu.Kia EV6 er hreinn rafbíll og fyrsti bíllinn af nýrri kynslóð rafbíla Kia. Þetta er fyrsti bíll Kia sem byggður er á nýjum og háþróuðum E-GMP undirvagni (Electric-Global Modular Platform) sem er sérstaklega hannaður fyrir rafbíla. Þessi nýi undirvagn verður notaður í næstu kynslóðir rafbíla hjá Kia.

 Hinn nýi EV6 er þróaður samkvæmt nýrri hönnunarstefnu Kia sem einblínir á rafbíla framleiðandans. Hönnunin er djörf og framsækin í takt við þær spennandi nýjungar sem rafbílar kalla fram.

Hægt er að hlaða bílinn allt að 80% hleðslu á aðeins 18 mínútum og ná hleðslu sem dugar allt að 100 km á innan við fjórum og hálfri mínútu.

Kia EV6 er í boði bæði aftur- og fjórhjóladrifinn. Veghæð bílsins er 17 cm og farangursrými allt að 541 lítrar. Dráttargetan er um 1600 kg. Kia EV6 er aflmikill rafbíll og hægt er að velja um 229 og 325 hestafla rafmótor.

Hann verður svo einnig fáanlegur í GT útfærslu sem er 580 hestöfl og kemst úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 3,5 sekúndum. Hámarkshraði bílsins er 260 km/klst. EV6 er búinn nýjustu aksturs- og öryggiskerfum Kia. Framleiðsla á bílnum hefst í júlí en hann verður frumsýndur hér á landi seinni hluta ársins.