Langflestir ökumenn til mikillar fyrirmyndar

Umferðareftirlit er viðamikill hluti af starfsemi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og hvergi hefur verið slakað á í þeim efnum í sumar. Umferðin hefur almennt gengið vel fyrir sig í umdæminu og vonandi verður svo áfram.

 Fram kemur á Facebook-síðu lögreglunnar að þótt fjöldi umferðarlagabrota komi til kasta lögreglu má samt ekki gleyma því að langflestir ökumenn eru til mikillar fyrirmyndar. Á það er sjaldan minnst og því leyfum við okkur að gera það hér og nú.