Mikil aukning umferðar á höfuðborgarsvæðinu í október

Umferðin um þrjú mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst um ríflega níu prósent í nýliðnum október og hefur ekki aukist jafnmikið síðan árið 2007. Umferðin í ár hefur aukist um heil 8,5 prósent sem þýðir að alls hafa 51 milljón ökutækja farið um mælisniðin þrjú á 10 mánuðum. Það stefnir í að umferðin aukist um átta prósent í ár sem er gríðarlega mikil aukning.

Mesta aukning á milli október mánaða síðan 2007

Líkt og á Hringvegi jókst umferðin á höfuðborgarsvæðinu gríðarlega mikið í nýliðnum október, borið saman við sama mánuð á síðasta ári, eða um 9,1%. Þetta er mesta aukning á milli október mánaða síðan árið 2007 en þá jókst umferðin um 11% miðað við árið þar áður.

Umferð jókst mest um mælisnið á Reykjanesbraut eða um 13,2% en minnst jókst umferðin á Hafnarfjarðarvegi eða um 6%. Umferð hefur aukist um 8,5% frá áramótum og er þetta mesta aukning miðað við árstíma síðan árið 2007. Alls hafa farið tæplega 51 milljón ökutækja um sniðin þrjú, frá áramótum.

Mesta umferðin á föstudögum – minnst á sunnudögum
Umferðin í október var mest á föstudögum og minnst á sunnudögum. Hlutfallslega jókst umferðin í október mest á miðvikudögum miðað við árið á undan eða um 15% en minnst jókst umferðin þriðjudögum eða um 6,5%.  

Verði umferðin með sama hætti og undanfarin ár stefnir í 8% um mælisniðin þrjú miðað við síðasta ár. Gangi þetta eftir yrði það næst mesta aukning sem orðið hefur frá upphafi þessarar samantektar því aðeins árið 2007 hefur mælst meiri hlutfallsleg aukning eða 9,1% aukning.