Nýr rafmagnaður Porsche Taycan frumsýndur

Bílabúð Benna frumsýnir nýjan Porsche Taycan nk laugardag kl. 12 í sýningarsal Porsche á Krókhálsi 9. Nýr Taycan er 100% rafknúinn, líkt og forveri hans, en kemur nú með meiri drægni og meira afli ásamt fleiri uppfærslum.

Porsche kynnti fyrst rafmagnaðan Taycan til sögunnar í lok árs 2019 og varð hann strax mjög vinsæll enda mjög aflmikill sportbíll sem var 100% rafknúinn.

Nýr Taycan er, eins og áður hefur komið fram, aflmeiri, með meiri hröðun, meiri drægni og styttri hleðslutíma. Hann er með meira staðalbúnaði, ásamt nýjustu kynslóð af Porsche Driver Experience með betri skjám og stjórnkerfi.

Meiri drægni og kraftmeiri

Nýr Taycan er með allt að 35% meiri drægni og betri hleðslugetu. Með 800-volta rafkerfi getur hann hlaðið allt að 320 kW, eða 50 kW meira en áður. Búið er að bæta hleðslutímann verulega og tekur aðeins 18 mínútur að hlaða frá 10% í 80. Með nýrri 105 kWh rafhlöðu og bættri fjöðrun er Taycan nú kraftmeiri, skilvirkari og þægilegri en nokkru sinni fyrr.

Ný hönnun á fram- og afturenda, ný ljós og bjartari skjáir eru meðal nýjunga í hönnuninni sem heldur þó í hið klassíska Taycan útlit. Þá er mun meiri staðalbúnaður en áður í bílnum en sem dæmi má nefna loftpúðafjöðrun, flottari innréttingu og Matrix ljós.

Áður en framleiðsla hófst var prufueintökum ekið meira en 3,6 milljónir kílómetra um allan heim til að tryggja að bílinn myndi standa ströngustu kröfur.