Nýr umferðarvefur Vegagerðarinnar

Vegagerðin opnar nýjan umferðarvef, umferdin.is, á morgunfundi nk. fimmtudag. Vefurinn mun sinna því hlutverki sem núverandi færðarkort Vegagerðarinnar hefur sinnt um árabil og flestir vegfarendur þekkja vel. Nýi vefurinn verður mun aðgengilegri, sérstaklega í snjalltækjum, og mun gefa mun meiri möguleika til framþróunar. 

Vefurinn umferdin.is birtir færðar- og veðurupplýsingar Vegagerðarinnar sem nú má sjá á færðarkorti á vefnum vegagerdin.is. Búið er að færa færðarkortið og þær upplýsingar sem því fylgja til nútímalegra horfs. Sem dæmi er færðarkortið nú þysjanlegt og mun auðveldara að nálgast allar upplýsingar. 

Nýr vefur mun einnig auðvelda Vegagerðinni að bæta og auka alla upplýsingagjöf og þróa til framtíðar. Í vetur verða bæði nýr og eldri vefur aðgengilegir og uppfærðir meðan reynsla fæst af hinum nýja vef.