Nýskráningar 285 fyrstu tvær vikur ársins

Nýskráningar fyrstu tvær vikurunar þessa árs eru 285 sem er um 9,8% samdráttur miðið við sama tímabil í fyrra. Toyota er sem fyrr með flestar nýskráningar, alls 51. Mitsubishi kemur er í öðru sæti með 34 bíla og Kia með 29 bíla í þriðja sætinu.

Nýskráningar til almennra notkunar er yfirgnæfandi eða um 96,5%. Bílaleigur eru 3,5%.

Tengiltvinnbílar eru 25,8% nýskráninga. Rafmagnsbílar koma þar á eftir með 19,3% og hybrid með 16,5%. Bensínbílar eru 12,6% og dísil 12,6%.