Ökuljós allan sólarhringinn eru lögboðin

Samgöngustofa og lögregla hafa nú hnykkt á því að það sé lagaskylda á Íslandi að hafa ökuljósin kveikt á bílum í akstri allan sólarhringinn. Eftir að Evrópusambandið gaf út tilskipun um sérstök orkusparandi dagljós í bílum árið 2011 hefur þeim bílum farið fjölgandi í umferð sem kveikja sjálfvirkt á þessum dagljósum framan á bílnum en ekki á afturljósum. Mjög hefur verið kvartað undan þessu og hversu lítt bílar í umferðinni eru sýnilegir í rökkri og í dimmviðri, ekki bara hér á Íslandi heldur í grannlöndunum Danmörku og Svíþjóð m.a. Sjá frétt FÍB hér.

Í frétt frá Samgöngustofu og lögreglu í sl. viku segir m.a: "Margar nýjar bifreiðar eru búnar ljósum sem kvikna þegar bíllinn er ræstur og í fyrstu má halda að um sé að ræða ökuljós en sú er ekki raunin. Víða má sjá í umferðinni ökumenn nýrra bíla sem gera sér ekki grein fyrir þessu og aka um með takmörkuð ljós og eru jafnvel ljóslausir að aftan. Þessi ljós sem kvikna sjálfkrafa á nýjum og nýlegum bílum eru yfirleitt ófullnægjandi til aksturs þar sem ekki er um að ræða ökuljós og því verða ökumenn sjálfir að sjá til þess að öll „ökuljósin“ séu kveikt. 

Þessi ljósabúnaður kallast dagljós og er leyfður á Evrópska efnahagssvæðinu og af þeim sökum er heimilt að flytja slíkar bifreiðar inn til Íslands. Það gegnir hinsvegar öðru máli um notkun þessa búnaðar hér á landi. Það er ljósaskylda hér á landi – allan sólarhringinn og allan ársins hring – og því þarf ökumaður að gæta þess að ökuljósin, ekki stöðuljósin, séu kveikt á meðan á akstri stendur. Ljósskynjari þessa dagljósabúnaðar kveikir annars ekki á ökuljósunum fyrr en það rökkvar en utan þess tíma er bara kveikt á ígildi stöðuljósa að framan og í einhverjum tilfellum eru engin ljós kveikt að aftan.

Sumir hafa brugðið á það ráð að setja svart límband yfir ljósskynjara bílsins þannig að tölva bílsins skynji aðstæður þannig að það sé myrkur og að hún kveiki því á ökuljósunum strax og bifreiðin er ræst. Sumar bifreiðar eru með þannig ljósastillingu að þótt skilið sé við ljósin kveikt þegar slökkt er á bílnum þá slökknar sjálfkrafa á þeim þegar slökkt er á bílnum eða farið er út úr honum. Síðan kviknar aftur á ljósunum sjálfkrafa þegar bifreiðin er ræst. Þetta á þó við í undantekningartilfellum.

Ljósabúnaður bifreiða í dag er orðinn töluvert fjölbreyttari en áður en það er alfarið á ábyrgð ökumanna að hann sé rétt notaður."