Rafmagnaður strætó til reynslu á Íslandi

Nýr Mercedes-Benz eCitaro strætisvagn sem gengur eingöngu fyrir rafmagni hefur verið hér á landi í prófunum og reynsluakstri. Bíllinn vakti athygli hér á götum en hann var m.a. hjá Strætó, Hópbílum, Kynnisferðum og Isavia til reynslu í rekstri þessara fyrirtækja.

Hinn rafknúni eCitaro var frumsýndur á atvinnubílasýningunni IAA á síðasta ári og er þegar kominn í akstur víða í Evrópu þar sem honum er ætlað að leysa af hólmi dísilknúna strætisvagna. Bíllinn er án útblásturs og ekur um nánast hljóðlaust þar sem ekkert heyrist í rafmótornum.

Strætisvagninn gengur fyrir rafmagni í stað eldsneytis og er með rafhlöður sem skila alls 243 kW afli. Mercedes-Benz leggur mikla áherslu á að eCitaro sé góður í akstri og þægilegur fyrir farþega og ökumann. Sætin eru mjög góð og gott pláss innandyra í vagninum. Bíllinn er vel búinn nýjustu aksturs- og öryggiskerfum frá Mercedes-Benz.

Hinn nýi eCitaro reyndist íslensku fyrirtækjunum mjög vel. Þeir sem prófuðu bílinn voru sammála um að aksturseiginleikar bílsins hentuðu vel fyrir íslenskar aðstæður, hann hefur einstaklega góða fjöðrun og umhverfi ökumanns er sérstaklega þægilegt