Renault kynnti sérstaka sportútgáfu á rafmagnsbílum

Á alþjóðlegu bílasýningunni sem lauk í Genf um helgina kynnti Renault nokkrar spennandi nýjungar. Þar á meðal er hugmynd að sérstakri sportútgáfu á rafmagnsbílnum ZOE sem brúa á bilið milli götuútfærslu ZOE og rafknúna kappakstursbílsins Renault Formula E.

 Renault ZOE  e-Sport er hugmynd að fjórhjóladrifnum Hatchback sem búinn verður tveimur rafmótorum, aftan og framan, og tveimur rafhlöðum sem skila munu bílnum í 100 km/klst á aðeins 3,2 sekúndum.

Renault ZOE  e-Sport verður einungis 1400 kg að meðtöldum rafhlöðunum sem vega samtals 450 kg og verður bíllinn að mestu leyti smíðaður úr koltrefjum. Ramtals munu rafmótarnir skila 340kW orku til hjólanna og svarar sú orka til um 460 hestafla frá rafhlöðum sem búa yfir 40kWh orku.

Við þróun ZOE e-Sport Concept njóta hönnuðirnir góðs af mikilli og farsælli reynslu annarra sérfræðinga fyrirtækisins sem starfa við þróun sportbíla og kappakstursbíla fyrirtækisins, ekki síst þeirra sem vinna við Formula E kappakstursbílinn sem unnið hefur hvert mótið á fætur öðru á undaförnum misserum með fjórfalda heimsmeistarann Alan Prost í fremstu víglínu. Hámarkshraði ZOE  e-Sport Concept verður 210 km/klst og verður bíllinn aðeins 10 sekúndur að ná þeim hraða.