Samningar um breikkun Hringvegar á Kjalarnesi

Vegagerðin og Ístak hafa undirritað samningum lagningu fyrsta áfanga í breikkun Hringvegar um Kjalarnes milli Kollafjarðar og Hvalfjarðar. Um er að ræða breikkun á 4,1 km löngum kafla Hringvegar frá Varmhólum að Vallá. Breikka á núverandi 2 akreina veg í 2+1 veg með aðskildum akbrautum.

Í verkinu felst gerð hringtorgs við Móa, tvenn undirgöng úr stálplötum við Varmhóla og Saltvík, áningarstaður, hliðarvegir og stígar. Fergja á vegstæði og framtíðarstæði stíga meðfram hliðarvegum. 

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna og Gagnaveitu Reykjavíkur. Verkinu tilheyra ræsi, regnvatnslagnir, veglýsing, lagnir fyrir upplýsingakerfi Vegagerðarinnar og breytingar á lögnum veitufyrirtækja. 

Ístak mun strax hefja vinnu við verkið og eru áætluð verlok 2023.