Skerum upp herör gegn umferðarslysum

The image “http://www.fib.is/myndir/Keine_chance.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
Enn eitt hryggilega banaslysið í umferðinni varð í gær við Minni Borg í Grímsnesi. Við slysstaðinn er vísir að þéttbýli, þar er verslun við vegkantinn og auk þess nokkrir afleggjarar sem liggja að húsum, sumarbústöðum og bæjum. Þar sem svo háttar er mjög nauðsynlegt að draga úr hraða til að hafa svigrúm til viðbragða, fari eitthvað úrskeiðis hjá manni sjálfum eða öðrum ökumönnum. Nauðsynlegt er að góð umferðarmerki og skilti séu til staðar við staði sem þessa sem gefa skýrt til kynna hvað er framundan og hvernig beri að aka.
Og í tilefni af alvarlegum umferðarslysum sem orðið hafa undanfarið vill Umferðarráð minna á varnaðarorð til vegfarenda sem fram koma í ályktun sem ráðið sendi frá sér nýlega. Ályktunin er svohljóðandi:
„Umferðarráð minnir á að framundan er álagstími á vegum landsins. Reynslan sýnir að flest alvarlegustu umferðarslysin verða á þjóðvegum utan þéttbýlis að sumarlagi.  Mánuðina júní, júlí og ágúst, árin 1995 til 2004 létust 75 manns í 66 umferðarslysum hér á landi, þar af 12 erlendir ferðamenn.
Til þess að breyting verði á er að mati Umferðarráðs brýnt að allir leggist á eitt til þess að koma í veg fyrir slys. Löggæslu á vegum þarf að efla, vegmerkingar, m.a. við framkvæmdir þarf að bæta, áróður og fræðsla þarf að vera mikil, en fyrst og fremst þarf hver einasti vegfarandi að vera meðvitaður um þá miklu ábyrgð sem fylgir þátttöku í umferðinni.  Ökumaður sem fer varlega og eftir settum reglum er ekki einungis að minnka áhættu sína og farþega sinna heldur allra annarra í umferðinni.
Umferðarráð beinir þeirri eindregnu áskorun til allra landsmanna að þeir skeri upp herör gegn slysum í umferðinni. Enginn má þar skorast undan.“