Stefnir í umferðarmesta árið á Hringveginum

Umferðin á Hringvegi jókst um tæp tvö prósent í október sem er met í þeim mánuði. Nú er útlit fyrir að umferðin í ár slái metið frá árinu 2019 á Hringveginum. Gangi það eftir verður árið 2022 umferðarmesta árið fram til þessa samkvæmt tölum frá Vegagerðinni.

Umferðin í nýliðnum október jókst um 1,9% miðað við sama mánuð á síðasta ári.  Þar með var slegið nýtt met í októberumferð. Umferð jókst á öllum landssvæðum en mest um Austurland eða um rúm 8% en minnst við höfuðborgarsvæðið eða um tæpt. 1%.

Af einstaka talningastöðum jókst umferðin mest á Mýrdalssandi eða um rúmlega 31% en í umferð á Hellisheiði mældist samdráttur upp á 1,2%.

Frá áramótum
Nú hefur umferð aukist um 3,5%, frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Mest hefur aukningin orðið um Austurland eða tæp 14% en minnst við höfuðborgarsvæðið eða tæpt 1%. Umferð hefur aukist í öllum vikudögum en hlutfallslega mest á fimmtudögum, eða um 5,6%. Mest er ekið á föstudögum og minnst á laugardögum.

Nú stefnir í nýtt umferðarmet á Hringvegi og að umferðin aukist um tæp 3% miðað við árið 2021.  Verði það raunin verður árið 2022 tæplega 1% stærra en metárið 2019, á Hringvegi.