Suðurlandsvegur - framkvæmdir á lokametrunum

Framkvæmdir við Suðurlandsveg, Hringveg (1), milli Hveragerðis og Selfoss eru á lokametrunum og vonast er til að hægt verði að hleypa umferð á þann kafla sem enn er eftir um miðjan maí. Það fer þó eftir veðri hvenær hægt verður að malbika síðasta spottann.

Væntingar eru um að hægt verði að malbika síðasta kaflann á Suðurlandsvegi í kringum 20. apríl. Eins og staðan er núna er beðið eftir því að veðrið lagist. Um er að ræða kafla yfir Bakkárholtsá og brúna þar. Þegar því er lokið verður lagt yfirlag á tveimur stöðum, en það eru stuttir kaflar.

Eftir að búið er að malbika veginn þarf að jafna miðdeili og merkja veginn, setja upp umferðarmerki og ljúka öðrum frágangi. Að því loknu verður hægt að hleypa umferð á veginn, líklega um miðjan maí.

Á vef Vegagerðinnar er haft eftir Guðmundir Björnssyni hjá Verkfræðistofunni Hnit að framkvæmdir hafi almennt gengið mjög vel en þær eru nokkuð á undan áætlun.„Upphaflega var gert ráð fyrir að framkvæmdum lyki í lok september 2023 en útlit er fyrir að það verði í júní-júlí,“ segir hann.

Eftir páska lýkur síðan frágangi á grjótvörn við Bakkárholtsá. Þá verður gengið frá svelgjum, uppsetningu umferðaskilta og uppsetningu á vegmerkingum um leið og frost er farið úr jörðu.