Tesla ætlar að virða skipanir yfirvalda að vettugi

Bílaframleiðandinn Tesla ætlar að virða að vettugi tilmæli yfirvalda í Kaliforníu um áfrmhaldandi lokanir á iðnaðarframleiðslu í fylkinu með það að markmiði að hefta útbreiðslu kórónaveirufaraldursins. Verksmiðju Tesla var lokað 23. mars en grunur er um að framleiðslan með einhverjum hætti sé nú þegar hafin í trássi við stjórnvöld.

Stofnandi og framkvæmdastjóri Tesla, Elon Musk, brást ókvæða við þessum tilskipunum heilbrigðisyfirvalda í gær og sagði að fyrirtækið ætli að halda starfsemi sinni áfram. Musk var ekkert að draga undan í ummælum sínum og sagðist sjálfur mundi taka stöðu á færiböndum fyrirtæksins og tilbúinn að verða handtakinn ef til þess kæmi.

Musk hefur margsinnis hótað því að fara með verksmiðju Tesla frá Alameda sýslu en skipanir stjórnvalda um áframhaldandi lokun verður ekki til draga úr líkum á því að Tesla pakki saman og fari annað með verksmiðjuna. Musk hefur ekki legið á skoðunum sínum í þessu máli og segir skipun yfirvalda brjóta gegn stjórnarskrá Kaliforníu og hefur skotið málinu til dómstóla.

Musk finnst nóg komið í lokunum verksmiðjurnar og vill hefja framleiðslu nú þegar. Fyrirtækið hafi orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni og nú sé einfaldlega nóg komið. Stjórnvöld í fylkinu settust niður með Musk í gær til að ná sáttum og finna næstu skref í málinu.