Þema dagsins er öryggi fólks í umferðinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag, þriðjudaginn 11. febrúar og er sjónum að þessu sinni beint að öryggi fólks í umferðinni.

Útkallstæki lögreglu, slökkviliðs, björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Rauða krossins og Landhelgisgæslunnar voru sýnileg við helstu umferðaræðar kl. 8.00-9.00 og aftur kl. 16.00-17.30. Samstarfsaðilar 112-dagsins utan höfuðborgarsvæðisins grípa víða til sambærilegra aðgerða.

Forvarnir í umferðinni

Samstarfsaðilar 112-dagsins vara fólk sérstaklega við að nota síma og önnur snjalltæki undir stýri, enda sýna rannsóknir að þeir sem hafa hugann við slík tæki í akstri eru margfalt líklegri en aðrir til að valda umferðarslysum. 

Þeir hvetja jafnframt þá sem ganga og hjóla til að nota endurskin og vera þannig vel sýnilegir þeim sem fara um á bílum. Sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða á fjölförnum stöðum víða um land á morgun og ætla að dreifa 17.000 endurskinsmerkjum Neyðarlínunnar, Landsbjargar og Samgöngustofu. Fólk er eindregið hvatt til að þiggja endurskinsmerkin og nota þau.