Toyota innkallar 149 Hilux

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi ehf  um að innkalla þurfi 149 Toyota Hilux bifreiðar af árgerð 2018-2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að bremskukerfi bifreiðanna virki ekki sem skyldi.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.