Umferðaröryggi bara til brúks á tyllidögum?

Í aðsendri grein og í opnu bréfi til forstjóra Álversins í Straumvík í Morgunblaðinu í dag fjallar Ástvaldur Óskarsson, forstjóri Geymslusvæðisins ehf. um umferðaröryggi í kringum álverið. Í upphafi greinarinnar bendir höfundur á þær miklu sviptingar sem eru að eiga sér stað í skipulagsmálum í kringum svæðið í sunnanverðum Hafnarfirði. Ný iðnaðarsvæði eru að koma til, nýhöfn er á teikniborðinu og framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar eru á næsta leiti.

Mörg stór fyrirtæki eru að koma á svæðið með starfsemi sína og því ljóst að umferð mun aukast verulega, ekki síst þungaumferð stórra bifreiða. Báðir vitum við að erfitt hefur verið að koma skipulagsmálum svæðisins í gott horf og mörg álitamál risið. Ekki er búið að leysa þau öll þegar þessar línur eru skrifaðar. Einkum á þetta við um umferðarmál. Í ræðu og riti hefur þú, sem forstjóri stærsta fyrirtækisins á svæðinu, lýst því yfir að þér séu öryggismál efst í huga þegar kemur að skipulagi umferðarmála.

Meðal annars var þetta rætt á ágætum kynningarfundi í Bæjarbíói í Hafnarfirði í síðasta mánuði. Þar voru mættir margir bæjarbúar,fyrirtækjaeigendur og flestir forráðamenn Hafnarfjarðarbæjar. Á þeim fundi komu m.a. til umræðu mislægu gatnamótin við innkeyrslu ykkar hjá álverinu sem að laga þarf og breyta samhliða tvöfölduninni. Jafnframt kom fram að þið hjá álverinu komuð í veg fyrir að hægt væri að hanna þessi gatnamót með fullt umferðaröryggi að leiðarljósi.

Þetta staðfesti skipulagsstjóri Hafnarfjarðar á þessum fundi. Hann bætti við að hann dreymdi um að hugsanlega í framtíðinni væri hægt að breyta þeim frá núverandi hönnun, þannig að fullkomins umferðar öryggis væri gætt. Í lok greinarinnar spyr greinahöfundur: Hvað kom til? Eða er umferðaöryggi bara til brúks á tyllidögum hjá ykkur þarna í álverinu?