Umferðin á Hringveginum dregst saman

Umferðin á Hringveginum dróst saman um nærri sex prósent í janúar miðað við janúarmánuð í fyrra. Umferð dróst mest saman í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en jókst hinsvegar töluvert á Austurlandi. Umferð um teljara á Mýrdalssandi jókst mikið og meira en tvöfaldaðist af því fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Umferðin yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, reyndist 5,6% minni í nýliðnum janúar borið saman við sama mánuð á síðasta ári.  Ástæða þessa samdráttar er mikill samdráttur á og við höfuðborgarsvæðið og á Vesturlandi, en umferð jókst á öðrum svæðum.

Tæplega 9% samdráttur mældist á og við höfuðborgarsvæðið en mest jókst umferðin um Austurland eða um rúmlega 13%.

Þá kemur fram að af einstaka sniðum þá dróst umferð mest saman í mælisniði á Hringvegi við Úlfarsfell eða um rúmlega 9% en mest jókst umferð í mælisniði á Hringvegi um Mýrdalssand eða um rúmlega 114%. 

Samdráttur í umferð varð í öllum vikudögum nema föstudögum. Mest dróst umferð saman á sunnudögum eða um 15% en umferð jókst um 4,6% á föstudögum.Umferðin reyndist mest á föstudögum en minnst á þriðjudögum.