Umferðin eykst en nær ekki sömu hæðum og fyrir faraldurinn

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst jókst um tæp sex prósent frá fyrra ári sem er töluvert mikil aukning. Hún dugir þó ekki til þess að umferðin nái sömu hæðum og fyrir kórónuveirufaraldurinn eða árið 2019. Reikna má með að umferðin muni aukast um 6,3 prósent í ár samkvæmt tölum frá Vegagerðinni..

Umferð jókst talsvert á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum ágúst borið saman við sama mánuð á síðasta ári, ef marka má 3 lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, en þau sýna að tæplega 6% aukning hafi orðið á umferð í umræddum mánuði milli ára.

Öll snið sýna svipaða aukningu en mest eykst umferðin á Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku eða um tæp 7%. Þessi aukning dugar þó ekki til að slá nein met því umferðin 2018 og 2019 var meiri af því fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Nú hefur umferðin aukist um 6,3%, frá áramótum, borið saman við sama tímabil á síðasta ári, fyrir umrædd mælisnið. Umferð jókst í öllum vikudögum en mest á laugardögum eða um tæp 10%, en minnst á miðvikudögum. Mest var ekið á föstudögum.