Umferðin eykst mikið en er samt minni en fyrir tveimur árum

Umferðin á Hringveginum í júní jókst um rúm sex prósent frá því í sama mánuði í fyrra að því fram kemur í tölum frá Vegagerðinni. Umferðin er eigi að síður ríflega þremur prósentum minni en hún var árið 2019 í þeim sama mánuði. Útilit er fyrir að umferðin í ár aukist um átt til níu prósent sem myndi samt ekki duga til að jafna umferðina árið 2019.

Umferð um Hringveginn, yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar, í júní sl.  reyndist rúmlega 6% meiri en í sama mánuði á síðasta ári. Þrátt fyrir þessa miklu aukningu varð umferðin, engu að síður, rúmlega 3% minni en í sama mánuði árið 2019, sem er umferðarmesti júnímánuður frá upphafi mælinga.

Þá kemur fram að aukning varð á öllum landssvæðum og einstaka talningastöðum.  Mest jókst umferð um Austurland eða um rúmlega 37% en minnst um höfuðborgarsvæðið eða um 2,5%. 

Af einstaka talningastöðum er það helst að frétta að umferð jókst mest um talningasnið í Lóni, á Austfjörðum, eða um tæplega 143%, sem er mesta breyting á milli mánaða sem sést hefur í umræddum mælisniðum. Nú hefur umferð aukist um tæp 11%, frá áramótum, fyrir umrædd mælisnið.  Mest hefur umferð aukist um Norður- og Austurland eða um tæplega 20%.

Þegar horft er á vikudaga hefur umferðin aukist í öllum vikudögum það sem af er ári, borið saman við sama tímabil á síðasta ári. Mest hefur umferð aukist á sunnudögum, eða um rúmlega 16% en minnst á fimmtudögum eða um 6,5%.