Vegfarendur varaðir við snjóflóðahættu með SMS

Vegagerðin hefur komið á fót viðvörunarkerfi með SMS-skeytum um snjóflóðahættu til vegfarenda sem leið eiga um Ólafsfjarðarmúla.

Hægt er að skrá símann sinn hjá Vegagerðinni og fær viðkomandi þá sent sms-skeyti við öll fjögur viðvörunarstigin. Þegar varað er við, hættustigi lýst, vegi lokað og þegar opnað er eftir lokun.

Prófanir fóru fram s.l. vor og gáfust vel.  Nú hefur verið ákveðið að gefa þeim vegfarendum sem þess óska að gerast áskrifendur að þessum viðvörunum.  Sérstaklega er því beint til þeirra sem fara oft um veginn vegna atvinnu sinnar, skólasóknar eða af öðrum ástæðum að nýta sér þessar viðvaranir.  

Um er að ræða eftirfarandi stig:

A:  Varað er við snjóflóðahættu á næstu klukkustundum.
B:  Lýst yfir óvissustigi,  sem þýðir að snjóflóðahætta er viðvarandi og vegfarendur hvattir til að vera        ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.
C:  Lýst yfir hættustigi, veginum lokað.
D:  Hættustigi aflýst og vegurinn opinn.

Þeim vegfarendum sem áhuga hafa á að fá viðvaranir er bent á að senda tölvupóst þar sem kemur fram nafn og gsm númer í netfangið  umferd@vegagerdin.is  eða hringja í upplýsingasíma Vegagerðarinnar 1777.