Vel hefur gengið með gangagröft í Dýrafjarðargöngum

Gríðarlega vel hefur gengið að grafa Dýrafjarðargöng. Nú eru verktakarnir Metrostav a.s. og Suðurverk hf. búnir að sprengja Arnarfjarðarmegin og munu gangamenn nú færa sig yfir í Dýrafjörð og klára verkið þaðan. Búið er að sprengja 69 prósent ganganna eða nánast alveg upp á hábunguna, alls 3658 metra. Hábungan liggur nær Dýrafirði en að öllu jöfnu grafa menn upp fyrir sig. 

Eftirlitið með gangagerðinni er í höndum GeoTek ehf. og Eflu ehf og kemur fram í tilkynningu frá þeim aðilum að síðasta færan í göngunum Arnarfjarðarmegin hafi verið sprengt sl. laugardag.Starfsmenn verktaka voru að vonum glaðir og ánægðir með þennan flotta áfanga.

Enda þótt þeir séu ekki alveg komnir að hábungu þá var ákveðið að láta staðar numið þar sem rafmagnskapallinn var kominn í botn og því fyrirliggjandi að eyða þyrfti a.m.k. hálfri vakt til að færa spenninn til þess eins að sprengja nokkrar færur og því ákveðið að láta gott heita.

Í vikunni lengdust göngin um 77,7 m og er endastafn Arnarfjarðarmegin í stöð 6.790,6. Lengd ganga þá orðin 3.657,6 m sem er um 69,0% af heildarlengd og eru 27,5 m eftir að hábungu. Alls voru 740 færur sprengdar í göngunum Arnarfjarðarmegin auk sprengivinnu í hliðarrýmum útskota. Meðalfærulengd frá byrjun gangagraftrar er því um 4,94 m sem verður að teljast mjög gott.

Nú á næstu vikum taka við flutningar yfir í Dýrafjörðinn en auk þess mun verktaki vinna að lokastyrkingum í göngum Arnarfjarðarmegin. Mun hann einbeita sér að hægri vegg ganga til að unnt sé að byrja á lagnavinnu í göngum nú í haust. Áætlað er að fyrsta sprenging í Dýrafirði verði í annarri viku í október.

Auk vinnu í göngum hefur verktaki unnið við vegagerð í báðum fjörðum, uppsetningu aðstöðu í Dýrafirði og brúargerð í Arnarfirði. Í Arnarfirði er fyllingavinna langt á veg komin og verktaki undanfarið aðallega unnið við fláafrágang og frágangsvinnu í skeringum. Í Dýrafirði gengur vegagerð einnig vel og farið að móta fyrir veglínunni á löngum köflum. Þá er uppsláttur fyrir syðri stöpul Mjólkárbrúar langt komin og verður hann steyptur á næstu dögum.